Jæja, nú er facebookið farið að virka hjá mér og ég að læra á kerfið. Mér finnst þetta voða skemmtilegt. Búin að sjá fullt af gömlum vinum og nýrri vinum og svo ættingjum. Ég er reyndar með svo gamalt windows að það vantar nokkra fídusa hjá mér... Þarf bara að redda mér windows xp...
Hér eru þvílík læti. Rebekka er með tvo vini í heimsókn og þau eru með hljómsveit! Úff mig langar í kertaljós, rólegheit og jólalög! Ætla sko að hafa það náðugt í kvöld.
Ég er búin að skrifa öll jólakortin! Svo nú er ég alveg til í að fara að baka. En facebookið er alveg að stela öllum tíma frá mér... Þarf bara smá sjálfsaga...
Þið sem hafið verið í sambandi við mig á Facebook. Sorry ef ég hef ekki svarað ykkur en allir vinir mínir nema einn eru dottnir út. Er ekki að skilja þetta. Ætti kannski bara að halda mig við íslenskt... er það ekki málið núna?
Annars er allt gott af okkur.
Ég er búin að vera alveg hrikalega andlaus síðustu daga og ekki dottið neitt sniðugt í hug til að skrifa hér... Ætla aðeins að reyna að bæta úr því...
Tengdó kom sl. fimmtudag og voru í borginni fram á sunnudag. Rebekka var að sjálfsögðu í essinu sínu og lét afa og ömmu snúast í marga hringi í kringum sig . Afi fór að sjálfsögðu með stelpuna út að hjóla og var mín hæstánægð með það. Á laugardagskvöldið bættust Bryndís og fjölskylda í hópinn hjá okkur og borðuðu allir saman Dominos pizzur, mjög einfalt og þægilegt. Við áttum svo notalegt kvöld saman og spjölluðum um daginn og veginn. Rebekka fékk nýtt vesti af prjónunum hennar ömmu og er svo fín í því!
Annars er mest lítið að gerast hjá okkur. Við mæðgur ætluðum í Fíladelfíu í gær en við þurftum að keyra Gústa í Samhjálp um 3 leytið og sofnaði mín í bílnum á leiðinni. Ég bar hana inn heima og hún steinsvaf - í 3 klukkutíma!! Greinilega uppsöfnuð þreyta í gangi eða einhver slappleiki. Hún sofnaði samt rúmlega 9 í gærkvöldi og svaf til hálf 8 í morgun...
Á morgun er foreldraviðtal í leikskólanum og verður spennandi að heyra hvernig henni gengur núna. Annars þykist ég nú vita hvað ég fæ að heyra . Svo er ömmu og afakaffi á morgun líka og ætlar mamma að kíkja á ömmustelpuna sína.
Jæja mér dettur ekkert fleira fréttnæmt í hug af okkur familíunni... Segi þetta gott í bili. Reyni að vera skemmtilegri næst
Ég trúi því varla að nú sé Klovn kominn í frí! Hvað á ég að gera núna á fimmtudagskvöldum þegar Gústi er ekki heima?! Reyndar varð ég fyrir smá vonbrigðum með síðasta þátt... Frank átti aldrei að fara niður á sama plan og Casper! Nú langar mig að láta semja nýjan þátt og breyta atburðarásinni... Hefði kannski átt að mæta í Iðu í vikunni og tala við karlana... En svona er livet.
Nutum fyrsta vetrardags í dag. Fórum í "sunnudaga"skólann í morgun upp í Ingunnarskóla en urðum að fara áður en hann var búinn því Rebekka átti að mæta í íþróttaskólann. Glataður tími fyrir sunnudagaskóla... En Rebekka var eitthvað voða slöpp í íþróttaskólanum og grunar mig að hún sé að fá einhverja kvefpest. Alla vega er horið vel grænt . Eftir skólana fórum við í Bónus að versla og urðum vör við nokkrar hækkanir... Svo fórum við aðeins í heimsókn til Söndru og var Ingvar Snær voða glaður að hitta Rebekku sína enda búinn að vera aðeins lasinn. Þaðan lá leið okkar í Árbæjarsafn en við komum við í Hraunbænum og tókum pabba með. Við röltum um Árbæjarsafn og enduðum í kakó og pönnukökum á kaffihúsinu þar. Mér fannst ég barasta komin í eitt af húsunum í Innbænum mínum. Ég sakna nú Tuliníusarhúss stundum... enda átti ég heima þar í 20 ár! Þegar heim kom fór Rebekka út með vini sínum úr næstu íbúð og ég skrapp í miðbæinn með Addý mágkonu. Við fórum í Iðu, fengum okkur kaffisopa og skoðuðum jólatímarit. Ég geri þetta alltaf reglulega að skreppa á kaffihús þar sem maður getur skoðað nýjustu tímaritin...
Jæja, best að hætta núna. Við Gústi ætlum að eiga notalegt kvöld saman - ekki ég við tölvuna
Hér á bæ var maður vakinn kl. 7 í morgun, á sunnudegi! Ég reyndi allt sem ég gat til að fá litla orkuboltann til að lúra lengur en nei, þegar maður er vaknaður þá er maður vaknaður... Nú situr hún og horfir á jólamynd!!
Já, við erum farin að hugsa til jóla. Ég byrjaði á föstudaginn að gera eldhúsið hreint og er enn að! Það var nú alveg komin þörf á smá yfirferð þannig að þetta er nú kannski ekkert endilega "jólahreingerning" svona í ljósi þess að nú lætur enginn hanka sig fyrir að gera "jólahreingerningar"...
Í gær fórum við í kaffiboð til mömmu og þar voru öll systkini mín með flesta fylgihlutina. Þegar ég horfði svo á Spaugstofuna í gærkvöldi þá grunaði mig að Spaugstofumenn hafi verið hjá mömmu og stolið bröndurunum sem sagðir voru þar! Ég átti brandarann um hamstrana og Þorgils bróðir átti brandarann um verksmiðjuna í Hafnarfirði og gjaldeyrismálin! Já, við erum ótrúlega skemmtileg fjölskylda, svona fyrir þá sem ekki vita það nú þegar
Síðasta helgi fór í lifrapylsugerð! Já, já maður verður nú að gerast þjóðlegur á þessum krepputímum, ekki satt? Mér finnst reyndar ótrúlega fyndið þegar fólk segir svona því ég hef aldrei orðið "óþjóðleg". Meira að segja á góðæristímanum þá eldaði ég kjötbollur, kjöt í karrý og saltkjöt og baunir! Ég fór aldrei í þennan humar og þistilhjartaham. Ég er kannski bara ekki betri kokkur en það. Ég kann bara það sem mamma mín kenndi mér... Já, unnin kjötvara átti nú ekki upp á pallborðið hjá landanum en ég hef alltaf verið mikill kjötbolluaðdáandi og þær renna ljúflega niður hjá fjölskyldumeðlimum með káli, gulrótum, kartöflum og rófum, þið vitið þessu þjóðlega grænmeti... Og ekki má gleyma Ljóma smjörlíkinu. Nú verður sjálfsagt barist um hvern unninn kjötbita  meðan rucolað fær að mygla í búðarhyllunum.
Jæja, nú ætla ég að fara að klára eldhúsið og baka svo nokkrar klessur. Ég á von á vinkonu minni frá Akureyri í dag. Hlakka mikið til.
Lifið heil
Maður er nú heldur óframtakssamur hér á blogginu þessa síðustu og verstu tíma. Bara smá leti í gangi og svo hefur tölvan verið að slökkva á sér í tíma og ótíma og það er svona frekar pirrandi. En áðan vorum við Gústi að laga til í skápum hér og fann Gústi þá gamla, einhverja svona stöð fyrir tölvuna og nú get ég sett hana í samband gegnum þessa stöð og þá slekkur hún ekki á sér!! Jibbý hvað ég er glöð með að þetta er komið í lag. Var farin að halda að ég þyrfti að festa kaup á nýrri tölvu en nú er það óþarfi enda varla til peningar fyrir því...
Ég var í Glasgow um síðustu helgi og náði að eyða alveg fullt af pundum þar... Ég var svo heppin að geta keypt nokkur pund af einstakling sem ég þekki og borgaði rúmlega 100 kall fyrir pundið... Verslaði svo mikið af fötum úti að ég varð að kaupa auka ferðatösku... Við í Gylfaflöt vorum í vinnuferð og skoðuðum við nokkra staði sem vinna með fötluðum í Glasgow og nágrenni. Þessi ferð var alveg frábær í alla staði og lærðum við margt og mikið sem á eftir að nýtast í vinnu og bara okkur sem einstaklingum. Okkur var boðið á Fund raising dinner á hótelinu okkar í Glasgow og oh my oh my - þvílíkt galakvöld og við náttúrulega ekki alveg í stíl við það... En gaman var að sjá svona "event" og kíkja undir nokkur skotapils
Hér á þessum bæ er ekki kveikt á sjónvarpi fyrr en eftir alla fréttatíma. Maður er alveg kominn með gubbuna af allri þessari vitleysu sem er og hefur verið í gangi. Nú verður maður bara að bíða, því örlög okkar eru í annarra höndum, þe. fjárhagsleg örlög. Sem betur fer á maður Jesú til að halla sér að og fá hughreystingu hjá.
Meðan ég var í Glasgow upplifði Rebekka draumahelgina sína! Hún og Gústi fóru á opnun Korputorgs tvo daga í röð... Hún hitti Íþróttaálfinn í bæði skiptin og náði að tala við hann og allt!! Sú var glöð, því hún er búin að vera að spyrja síðustu vikur hvenær hún fái eiginlega að hitta hann... Hún sýndi íþróttaálfinum hvernig hún stendur á höndum, svo sýndi hún honum dót sem hún fékk í búðinni og ræddi við hann um daginn og veginn. Hún hitti líka Sollu stirðu og Skoppu og Skrítlu. Sem sagt draumahelgi!
Hún dóttir mín er nú alveg yndisleg, svona ef það hefur farið fram hjá einhverjum . Það er svo gaman að horfa á hana stækka og þroskast og læra ný orð. Stundum hef ég samt svo gaman af orðaforðanum hennar sem er á einhvern hátt vitlaus... eins og dæmið með kleymóið sem ég sagði einhvern tíma frá hérna.
Hér koma fleiri dæmi:
Ég: Rebekka, voru íþróttir í salnum í dag?
Rebekka: Nei því NIÐUR mamma, það voru engar íþróttir!
Rebekku finnst NÝÐI á kartöflum ekki gott...
Ég var að naglalakka hana í kvöld og svo fékk hún að prófa sjálf. Þá kom... Oh, mamma sjáðu, það kom naglalakk á NÝÐIÐ mitt (húðina)!!!
... á morgun!! En þá koma feðginin mín heim og ég fæ að knúsa þau aðeins. Vá hvað ég er búin að sakna Rebekku mikið og að sjálfsögðu hans Gústa míns líka...
Svo er bara íþróttaskólinn á laugardaginn og eftir það ætlum við að fara að taka upp kartöflur upp í sumarbústað. Ummmm nýjar gullauga eru eitt það besta sem ég fæ! Svo veit ég að Gústi og Rebekka voru að tína krækiber handa mér í dag svo það verður aldeilis veisla hjá mér um helgina.
Ég er alveg að missa mig yfir Klovn núna svo ég segi ekki meira í bili...
Nú er maður bara einn að kúldrast í kotinu. Rósin og Gústi eru upp í bústað. Þetta síðasta vikan hjá Gústa í sumarfríi og langaði okkur að leyfa Rebekku aðeins að njóta þess og fá smá ábót á sumarfríið. Það er líka smá sprengur fyrir mig að finna alltaf einhvern til að sækja hana á leikskólann fyrir mig þegar ég er að vinna til hálf5 svo þetta kemur vel út. Það er reyndar spáð ömurlegu veðri og ég hringdi og bauð þeim feðginum heim... en þau vilja vera lengur í sveitinni þó svo það sé rok og rigning. Þau njóta þess og Rebekku finnst líka gaman að brasa með afa Guðmundi.
Ég nenni ekki einu sinni að elda handa mér einni svo ég lifi bara á einhverju rusli... Svo var ég með svaka plön um að laga til og gera fínt en ég nenni því ekki og er bara í stöðugri slökun
Ég fór með Rebekku í íþróttaskólann um síðustu helgi. Hún var sko búin að bíða eftir þessum degi síðan í maí!! Hún fór í 3 til 4 ára hópinn og var lang stærst og duglegust þar (og ég er ekki hlutdræg ) og ég var svo glöð þegar íþróttakennarinn kom og bauð Rebekku að koma í 5 til 6 ára hópinn! Hún átti að koma í þann hóp næsta laugardag en við ákváðum að vera áfram og skoða hópinn. Hún endaði í tveggja klukkutíma íþróttatíma og sagðist vera dálítið þreytt eftir það... Þarna er sko alvöru íþróttakona á ferð!
Mamma og Steindór eru komin heim. Jibbý! Ég er búin að sakna mömmu mikið og er svo glöð að geta skroppið núna í Funalindina í kaffi...
Jæja, Everwood  byrjað og Design Star rétt handan við hornið svo ég hætti núna...
Var búin að skrifa langa færslu en gleymdi að klikka á Vista áður en ég klikkaði á Skoða síðu!
Fúlt...
Jæja, enn ein mánaðamótin liðin og alltaf jafn gaman að borga reikningana... Ok, fúlasti reikningurinn þennan mánuðinn er sekt sem ég fékk. Ég keyrði gegnum Hvalfjarðargöngin á 78 km/klst og fékk 3.850 kr sekt... Mér að kenna, veit ég vel en samt hundfúlt að borga. Næst á eftir koma svo símareikningarnir en þeir hljóðuðu upp á 32.000!! Við skiptum í Vodafone fyrir nokkrum mánuðum og það átti að lækka reikningana... By the way - þeir voru í 18.000!! Og við höfum ekki breytt notkuninni. Eitthvað bogið við þetta sem ég ætla að komast til botns í.
En nóg af röfli í bili. Við erum búin að vera í tvo daga öll saman í sumarfríi! Það er búið að vera indælt. Fórum upp í bústað í gær og tíndum fullt af berjum, Rebekka og Gústi tíndu svo meira í morgun meðan ég fór í vinnuna fyrir múttu. Við fórum svo í afmæli í eftirmiðdaginn. Komum við í Einu sinni var og keyptum afmælisgjöfina og auðvitað fer maður ekki í dótabúð með frökenina án þess að kaupa eitthvað handa henni. Hún suðaði um andlitsmálningu þar til hún fékk hana. Hún átti hana nú alveg skilið fyrir berjatínsluna því hún er sko betri en engin í henni!
Afmælið var hjá hálfsystursyni Gústa og var öll föðurfjölskylda hans mætt nema hálfbróðir hans. Ég náði mér í uppskrift af frábærri epla/bláberjaköku. Hún verður prófuð um helgina. Rebekka var líka mjög ánægð með afmælið því hún fékk pakka eins og afmælisbarnið. Hún fékk smá glaðning frá afa Böðvari og Ástu frá útlöndum.
Á morgun fer Gústi aftur upp í bústað. Ég ákvað að við Rebekka verðum heima fram að helgi svo Gústi fái vinnufrið... Það er búið að kaupa efni í nýjan glugga, nokkrar rúður sem þarf að skipta um, svo þarf alveg að skipta um klæðningu á öðrum stafninum. Vonandi verður svo tími til að halda áfram með pallinn. Í vetur ætlum við svo að skipta út eldhúsinnréttingunni. Vinkilinn í eldhúsinu er ekki 90° svo við verðum að hugsa aðeins út fyrir rammann. Ég horfi á Design Star til að fá hugmyndir...
Góða nótt...
... betri tíð... Alla vega finnst mér hálf haustlegt úti. Mælirinn skríður varla yfir 10 stigin og hráslagaleg rigningin lætur ekki á sér standa. Við eigum samt enn eftir að fara í berjamó. Maður lætur sig hafa bleytu og kulda um helgina bara til að komast aðeins í ber. Það er alla vega planið. Gústi er að fara í sumarfrí á mánudaginn og ég líka!! Ég tek viku með honum - þ.e.a.s. hann verður örugglega upp í bústað að vinna og ég í bænum. Ég ætla nefnilega að leysa mömmu af í hennar vinnu því gellan er bara á Spáni að spóka sig núna. Það er alltaf gaman að hitta liðið hjá Landhelgisgæslunni og Sjómælingum, þar er alltaf vel tekið á móti manni ef maður kíkir við.
Annars er lífið ósköp rólegt þessa dagana. Rebekka er byrjuð á nýrri deild á leikskólanum og er mjög ánægð þar, reyndar er hún alltaf ánægð í leikskólanum sama hvar hún er. Á þessari deild eru bara eldri börn og svo 7 önnur börn á sama ári og Rebekka. Henni finnst hún voða stór að vera komin á þessa deild. Þarna verður hún þar til hún byrjar í skóla eftir 2 ár.
Við Gústi erum búin að færa okkur aftur yfir í Fíladelfíu kirkjuna. Við tókum ákvörðun um það fyrir nokkrum vikum þar sem við komumst að því að stundum þarf maður ekki að bera vatnið yfir lækinn... Við erum mjög sátt við þessa ákvörðun. Gústi heldur áfram að spila í Samhjálp og svo er ýmislegt í boði. Hann er að hugsa málið...
Það styttist í Glasgow og ég þarf að fara að kynna mér mollin þar sem maður hefur bara einn dag til að eyða peningum...
Jæja, verð að hlaupa - smá óþekkt í anganum mínum.
... á enda . Ég byrja að vinna á mánudaginn og þá fer nú allt í fastar skorður aftur. Ég er virkilega búin að njóta þess að vera með Rebekku í þessu fríi. Mér finnst ég hafa verið svo heppin að fá að eiga þennan tíma með henni. Auðvitað er Gústi líka búinn að vera með okkur eftir vinnu og svoleiðis en þetta er búinn að vera alveg einstakur tími og gæfi ég mikið fyrir að geta unnið enn lægri prósentu en ég geri nú þegar. 50 % starf væri fínt... En það kemur nú kannski seinna þegar maður hættir á lúsarlaununum hjá ríkinu...
Annars er það að frétta að það eru ýmis ný verkefni í gangi hjá mér, þar á meðal mjög spennandi verkefni fyrir Lindina og verkefni fyrir Fíladelfíu. Ég tók starfsnámið mitt að stórum hluta til í Fíladelfíu þegar ég var í Kennó og nú fer ég að gera eitthvað í líkingu við það sem ég var að gera þá... Og það sem við Sheila erum að vinna að fyrir Lindina er ótrúlega skemmtilegt og við á rosa flugi hugmyndarlega séð... Áætlum afhjúpun verkefnisins í kringum 1. október... Segi ekki meir í bili...
Ég kem nú næstum á nýjan vinnustað þegar ég mæti til vinnu því þar er búið að snúa öllu á hvolf, þ.e. flytja deildir. Deildin mín er komin í annað og stærra rými og bíður mín að innrétta það. Það verður fyrsta verkefni. Svo er vetrarstarfið bara að fara í gang með öllu sem því fylgir. Ég er að fara inn í þriðja árið mitt í Gylfaflötinni og er ég með svona "mixed" tilfinningar gagnvart því. Part af mér langar að takast á við eitthvað alveg nýtt meðan annar partur hlakkar til að hitta ungmennin mín og gera það sem ég hef verið að gera... En er það ekki alltaf svona?
Annars er bara berjatínsla framundan, erum aðeins búin að kíkja og tína smá en við erum algjörir berjasjúklingar svo það er sko ekki nóg!
Hætti núna
Jæja, nú er einn dagur eftir af sumarfríinu og þýðir það að ég hef ekki bloggað í u.þ.b. 5 vikur... Enda nóg annað að gera í sumarfríi. Ég er reyndar búin að vera veik sl. tvær vikur með ógeðslegt kvef og þrátt fyrir penisillín og sterasprey er það ekki á undanhaldi! Ég er orðin verulega þreytt á þessu og ætla aftur til doksa og heimta eitthvað ennþá sterkara!!!
Fórum þrátt fyrir heilsuleysi á Kotmótið og var það mjög fínt (fyrir utan beinverki o.fl........). En við höfðum það gott, vorum í tjaldi fyrstu nóttina því veðrið var alveg geggjað en fórum svo í hús á Hellu því það var töluvert kaldara seinni nóttina. Gústi spilaði á einni samkomu og Rebekka skemmti sér konunglega á barnamótinu. Hápunkturinn var samt að hitta Guðna Hjálmars úr eyjum. Hún bókstaflega ljómaði þegar hún sá hann, hljóp til hans og tilkynnti að hún væri komin! Hún er ekki alveg að fatta að fólk sem er oft í sjónvarpinu okkar sér okkur ekki... kemur með aldrinum. En á leiðinni í Kotið sagði hún; mamma, hvað heldurðu að Guðni segi þegar hann sér að ég er komin?? Sá verður hissa! Þvílík dúlla! En Guðni er góð fyrirmynd, enda forstöðumaður í eyjum og frábær með krökkunum.
Ættarmótið og norðurferðin voru fín líka. Óvenju margir á ættarmótinu og frábært veður sem við fengum á Grenivík. Komst samt að því að þar er dýrasta matvöruverslun sem ég hef farið í á landinu...
Það er svo sem ýmislegt annað sem maður er búinn að vera að brasa en ég nenni varla að týna það til hér... Bara lífið er gott fyrir utan kvef um mitt sumar! Og búið að vera yndislegt að vera með Rebekku í fríi. Gústi fer í frí í byrjun sept. í þrjár vikur. Fúlt að missa af því... en ég fæ þó einhverja uppbót á fríið vegna þessara veikinda, svo það er möguleiki á að ég verði eitthvað með honum í fríi.
Till next time